512 4200 info@tst.is

Trilluvogur 1

Fjölbýlishús á þremur til sex hæðum við Kuggavog og þriggja hæða raðhús við Súðarvog með opinni bílageymslu og sameiginlegum garði milli húsanna. 46 íbúðir eru á lóðinni. Íbúðir eru fjölbreyttar að gerð og stærð, tveggja til sex herbergja. Fjölbýlishúsið stallast niður í hæð og hafa íbúðir efstu og fyrstu hæða þakgarða, en aðrar rúmgóðar svalir. Byggingarnar eru staðsteyptar, einangraðar að innan og þök grasilögð sem gegna mikilvægu hlutverki ásamt gróðurbeðum í ofanvatslausnum fyrir lóðina. Yfirborð hússins einkennist af ljósri steypu. Veggflöturinn er brotinn upp með lituðum flötum milli glugga á efri hæðum og dekkra yfirborð er að finna á hluta jarðhæða og stigahúsa.

Ár 2017-2020
Staður Trilluvogur 1, Reykjavík, Ísland
Stærð 5335 m2
Verkkaupi Landris
Mannvirki Íbúðarhúsnæði
Myndir Hans-Olav Andersen