512 4200 info@tst.is

Sjúkrahúsið á Akureyri

Úr greinargerð samkeppnistillögu um nýbyggingu við Sjúkarhús Akureyrar:

Fjölbreytt og örvandi upplifun fyrir sjúklinga og starfsfólk, fallegt umhverfi innan húss sem utan, skilvirk herbergjaskipan, hagkvæmni í uppbyggingu og vistvænar áherslur eru leiðarljós í hönnun nýbyggingar legudeildar SAK.

Nýbygging legudeilda myndar sterka heild með núverandi byggingum og verður öflug umgjörð um aðbúnað sjúklinga og góðar starfsaðstæður.

Forsögn legudeildarbyggingar er þríþætt. Vegna innra skipulags starfsemi sjúkrahússins í dag er rökrétt að deila forsögninni niður á þrjár hæðir:

• 2. hæð – Skurðlækningadeild
• 1. hæð – Lyflækningadeild
• 0. hæð (k1) – Geðdeild

Landið þar sem nýbyggingunni er ætlaður staður hallar frá Búðartröð niður til austurs að D-álmu, sem nemur um einni húshæð. Tækifæri eru til landmótunar þannig að óverulegur hluti nýbyggingar verði neðanjarðar.

Nýbyggingin samsvarar sér vel og fellur vel að fyrirliggjandi skipulagshugmynd og aðliggjandi byggð. Mælikvarði bygginganna er í takt við sjúkrahússbyggingarnar sem hafa verið reistar á liðnum áratugum.

Tenging milli nýbyggingar og eldri byggingar er um tengigang. Tengigangurinn hefur tvíþætt hlutverk, annarsvegar að tengja nýbygginguna við núverandi og framtíðarstarfsemi og hinsvegar að móta landið og skapa góð skilyrði fyrir geðdeild á jarðhæð.

Tvær þriggja hæða legudeildarbyggingar liggja þvert á tengiganginn til austurs. Fallegir inngarðar myndast milli bygginganna og D-álmu. Auk þess eru opnir ljósgarðar miðlægt í hvorri legudeildarálmu.

Innanhúss er áhersla á hlýja og örvandi upplifun, þar sem náttúruleg efni, timburklæðning veggja og lofta, línóleum á gólfum þar sem það á við, gegna lykilhlutverki. Utanhúss er áhersla á aðlögun að umhverfinu og aðliggjandi byggingum. Rík áhersla er á dagsbirtu innanhúss og útsýni úr byggingunni. Hér er hönnunin einstök í þessu sambandi þar sem í miðju bygginga er opið fyrir dagsbirtu fyrir allar hæðir með opnum ljósgörðum.

Ár 2024
Staður Akureyri
Stærð 9.200 m2
Verkform Lokað útboð
Mannvirki Sjúkrahús
Samstarfsaðilar Kanon, Hljóðvist, Örugg, TKM, Teknik