512 4200 info@tst.is

LAUGAVEGUR 86-94

Íbúðar- og verslunarhúsnæði ásamt bílastæðahúsi. Alútboðstillaga í samstarfi við Ístak. Hæsta einkunn fyrir lausn og tillögu, lægsta verðtilboð. 
Byggingin er hluti randbyggðar sem afmarkast af Laugavegi, Barónsstíg, Grettisgötu og Snorrabraut og er aðlöguð hæð aðliggjandi bygginga. Sex verslunarrými eru á götuhæð að Laugavegi. Tveggja og þriggja herbergja íbúðir eru á efri hæðum. Bílastæðahús fyrir almenning er neðanjarðar, innakstur um port frá Laugavegi. Byggingarnar eru staðsteyptar, einangraðar að innan. Burðarvirki bílastæðahúss hefur þá sérstöðu að engar súlur eru á milli bílastæða og er burðarvirkinu aðeins komið fyrir í jaðri bílastæða.

Ár 2003-2006
Staður Laugavegur 86-94, Reykjavík, Ísland
Stærð -m2
Verkkaupi Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Gatnamálastofa Reykjavíkur,
Orkuveita Reykjavíkur og Landssíminn
Verkform
Mannvirki Íbúðarhúsnæði
Myndir Hans-Olav Andersen
Samstarfsaðilar Ístak
Tilnefningar
Verðlaun
Umfjöllun