HOF OG SAFNAÐARHEIMILI ÁSATRÚARFÉLAGSINS
Markmið tillögunnar er að skapa sem sterkust tengsl á milli náttúru og trúarlegra athafna Ásatrúarfélagsins. Leitast er eftir að byggingin gangi ekki um of á náttúruna, þannig að mögulegt verði að finna litla lundi á lóðinni þar sem trúarlegar athafnir geta átt sér stað. Hof og safnaðarheimili Ásatrúarfélagsins verður því aðgengilegt öllum, hvort sem fólk kýs forna eða nútímalega samgönguhætti. Byggingar koma til móts við kröfur nútímans en eru einnig rammi utan um aldagamlar venjur og hefðir, þar sem náttúra hefur ávallt haft sinn sterka seiðkraft. Úti undir berum himni geta komandi kynslóðir sett spor sín í náttúruna, á sama hátt og víkingar gerðu forðum.
Ár | 2008 |
Staður | Öskjuhlíð, Reykjavík, Ísland |
Stærð | 837 m2 |
Verkkaupi | Ásatrúarfélagið |
Verkform | Lokuð Samkeppni |
Mannvirki | Hof og safnaðarheimili |
Myndir | Hans-Olav Andersen |
Samstarfsaðilar | – |
Tilnefningar | – |
Verðlaun | – |
Umfjöllun | – |