Hjálpræðisherinn
The Salvation Army
Höfuðstöðvar Hjálpræðishersins á Íslandi eru umgjörð um fjölbreytta starfsemi og þjónustu við almenning og skjólstæðinga Hjálpræðishersins. Þar fara fram sam- komur, ýmiskonar velferðarþjónusta, veitingarekstur ásamt yfirstjórn starfsemi Hjálpræðishersins á Íslandi. Fjöldi gesta í húsinu er mjög breytilegur. Samkomusalir hússins miðast við blandaða notkun veitingahúss og samkomuhúss. Byggingin er ein og tvær hæðir sem eru misstórar að grunnfleti. Mikil rýmd er í byggingunni og hátt til lofts í helstu salarkynnum á fyrstu hæð. Lofthæð er mjög breytileg vegna hallandi þakflata sem endurspeglast innanhúss. Við húsið er stórt útisvæði þar sem m.a. er gert ráð fyrir leiksvæðum fyrir börn og matjurtargarði.
Ár | 2017-2021 |
Staður | Suðurlandsbraut 72-74, Reykjavík, Ísland |
Stærð | 1442 m2 |
Verkkaupi | Hjálpræðisherinn |
Verkform | – |
Mannvirki | Félagsmiðstöð og kirkja |
Myndir | Claudio Parada, Chris Lund, Hans-Olav Andersen |
Samstarfsaðilar | Ferill, Verkís, Lota, Mannvit, Kanon arkitektar |
Tilnefningar | – |
Verðlaun | – |
Umfjöllun | Archdaily |