Efstaleiti 5
Tvílyft skrifstofu- og fundarhús með háreistum samkomusal fyrir miðju, sem skrifstofur, fundarherbergi og önnur þjónusturými raðast umhverfis á báðum hæðum. Gott vinnuumhverfi með áherslu á hljóðvist, loftgæði og þægilega lýsingu sem samspil rafmagns- og dagsbirtu. Efnisval utanhúss einkennist af láréttum zinkþiljum ásamt gegnheilli eik í gluggaflötum. Innanhúss er eik í hurðum, gólflistum og innréttingum.
Húsið hlaut viðurkenningu byggingarnefndar Reykjavíkur fyrir framúrskarandi hönnun og frágang uppdrátta árið 2000 og var sagt í umsögninni:
„Útlínur byggingarinnar mynda strangt kassalaga form, en yfirborðsfletir allra hliða eru rofnir á frjálslegan en um leið mjög agaðan hátt. Hönnuðir nota aldagamlar aðferðir sem byggja á rými, ljósi, lit og áferð við að forma bygginguna, bæði að utan og innan. Útlit byggingarinnar hefur sumpart klassíska eiginleika hvað varðar hlutföll og form. Má þar nefna samspil sívalninga, kassa og holrýmis og samspili ferninga og rétthyrninga. Heildarskipulag og nánari útfærsla á grunnmyndum, útliti og efnisvali, virkar einföld og nánast sjálfgefin en er í raun árangur hönnunar, sem aðeins næst með miklu innsæi og þroska viðkomandi höfunda.“
„Teiknistofan Tröð er meðal þeirra sem ávallt skila mjög vönduðum og vel útfærðum uppdráttum með byggingarleyfisumsóknum. Uppdrættir frá þeim og önnur gögn eftir því sem við getur átt, eru langt umfram meðallag og bera vott um faglegan metnað og kunnáttu, ekki síður en afburða hönnun. Þetta á m.a. við um uppdrætti sem fylgja þessu verkefni og eru meðal þess besta sem lagt hefur verið fyrir núverandi bygginganefnd.“
Ár | 1999-2001 |
Staður | Efstaleiti 5, Reykjavík, Ísland |
Stærð | 1760 m2 |
Verkkaupi | Trésmiðafélag Reykjavíkur |
Verkform | – |
Mannvirki | Skrifstofuhúsnæði |
Myndir | Bragi Þór Josefsson, Hans-Olav Andersen, Reinzink |
Samstarfsaðilar | – |
Tilnefningar | – |
Verðlaun | Viðurkenning Byggingarnefndar Reykjavíkur árið 2000 |
Umfjöllun |
Byggekunst, Oslo, Norway, 02-03, bls. 40-45, Efstaleiti 5, skrifstofuhús, |