BORGARTÚN 26
Byggingin samanstendur af tveimur húshlutum, fimm og átta hæða, sem tengjast stigahússturni fyrir miðju við aðalinngang. Bílageymsla á þremur hæðum er í kjallara. Byggingunni er skipt niður í misstórar útleigueiningar til óskyldra aðila.
Á fyrstu hæð eru verslanir, veitingastaðir og hárgreiðslustofa. Skrifstofur á efri hæðum eru innréttaðar að þörfum hvers leigutaka, ýmist sem opin eða lokuð skrifstofurými eða blanda af hvortveggja. Rúmlega tuttugu fyrirtæki eru starfrækt í byggingunni.
| Ár | 2004-2010 |
| Staður | Borgartún 26, Reykjavík, Ísland |
| Stærð | 17628 m2 |
| Verkkaupi | Þyrping |
| Mannvirki | Verslunar- og skrifstofuhús með bílakjallara |
| Myndir | Hans-Olav Andersen |