BORGARTÚN 26
Byggingin samanstendur af tveimur húshlutum, fimm og átta hæða, sem tengjast stigahússturni fyrir miðju við aðalinngang. Bílageymsla á þremur hæðum er í kjallara. Byggingunni er skipt niður í misstórar útleigueiningar til óskyldra aðila. Á fyrstu hæð eru verslanir, veitingastaðir og hárgreiðslustofa. Skrifstofur á efri hæðum eru innréttaðar að þörfum hvers leigutaka, ýmist sem opin eða lokuð skrifstofurými eða blanda af hvortveggja. Rúmlega tuttugu fyrirtæki eru starfrækt í byggingunni.
Ár | 2004-2010 |
Staður | Borgartún 26, Reykjavík, Ísland |
Stærð | 17628 m2 |
Verkkaupi | Þyrping |
Verkform | – |
Mannvirki | Verslunar- og skrifstofuhús með bílakjallara |
Myndir | Hans-Olav Andersen |
Samstarfsaðilar | – |
Tilnefningar | – |
Verðlaun | – |
Umfjöllun | – |