512 4200 info@tst.is

Grensásdeild

Endurhæfingardeild Landspítala

Úr greinargerð samkeppnistillögu:

Nýbygging við Grensásdeild tengist eldri byggingum þannig að myndist sterk heild og öflug umgjörð um þjálfun og endurhæfingu. Fjölbreytt og örvandi upplifun, fallegt umhverfi innan húss sem utan, skilvirk herbergjaskipan, hagkvæmni í uppbyggingu og vistvænar áherslur eru leiðarljós í hönnun nýbyggingar við Grensásdeild. Nýbyggingin er tvískipt, annars vegar einnar hæðar bygging sem tengist vesturhlið sundlaugabyggingar, hins vegar tveggja hæða bygging með kjallara sem tengist vesturgafli aðalbyggingar. Fyrsta hæð nýbyggingar tengist aðalbyggingu og sundlaug, á þeirri hæð fer fram meðferð og þjálfun. Önnur hæð tengist vesturgafli aðalbyggingar, þar eru legudeild og smitsjúkdómadeild og tengjast þær núverandi legudeild. Í kjallara eru tækni og þjónusturými.

Aðalinngangur og inngangur sundlaugar eru óbreyttir. Góð aðgreining er annarsvegar milli skjólstæðinga og gesti Grensásdeildar og hinsvegar utanaðkomandi sem sækja sundlaug.

Gólf 1. hæðar verði samfellt. Það tryggir hindrunarlaust aðgengi milli allra húshluta Grensásdeildar. Starfsemi á 1. hæð er samtengd með hringgangi. Það tryggir góða yfirsýn, skilvirkt flæði sjúklinga, starfsfólks og gesta og einfaldar rötun. Ekki er farið í gegnum eina starfseiningu til að komast í aðra. Stuttar leiðir eru fyrir dag- og göngudeildarsjúklinga og fara þeir ekki langt inn í húsið til að sækja þjónustu.

Stórir salir sjúkraþjálfunar eru í norðurhluta nýbyggingar við sundlaug. Stórir gluggar vísa til norðurs, að auki er dagsbirtu veitt um þakglugga og efri glugga í þjálfunarsal, sem er með um 6m lofthæð.

Legurými eru björt og rúmgóð með glugga ýmist til austurs eða vesturs. Lögð er áhersla á staðlaða útfærslu legurýma og snyrtinga.

Sjö nýir þemagarðar verða í og umhverfis Grensásdeild. Hver garður hefur ákveðið þema og er ætlað að styðja við starfsemina. Formgerð og efnisnotkun hvers þemagarðs verður misjöfn en þeim er m.a. ætlað að örva skynfæri s.s. hljóð, lykt, áferð, bragð og ásýnd. Einn garður er ræktunarsvæði þar sem skjólstæðingar geta unnið störf sem henta hverjum og einum.

Aðkoma bíla að lóð er óbreytt um núverandi innkeyrslu frá Álmgerði. Aðalinngangur og inngangur sundlaugar til norðurs er óbreytt og greið aðkoma er fyrir ferðaþjónustu fatlaðra. Stærri bílastæði, sem uppfylla kröfur um aðgengi fyrir alla, eru næst aðalinngangi, hluti þeirra yfirbyggð.

 

Ár 2022
Staður Reykjavík
Stærð 4.380 m2
Verkform Samkeppni
Mannvirki Endurhæfingardeild
Samstarfsaðilar Teknik, Lota, Birkir Einarsson