HAFNARBRAUT 4-8
Fjögurra hæða íbúðarhúsnæði með bílageymslu í kjallara. Íbúðir eru í mismunandi stærðum, tveggja til fimm herbergja. Geymslur, tæknirými og bílageymslur eru í inngrafinni jarðhæð. Sameiginlegur garður ofan á bílageymslu. Byggingarnar eru staðsteyptar, einangraðar að utan og klæddar álplötum. Litaðir fletir úthliða skipta byggingunum upp í einingar.
| Ár | 2018-2023 |
| Staður | Kópavogur |
| Stærð | 5984 m2 |
| Verkkaupi | Hafnarbyggð ehf. |
| Mannvirki | Íbúðarhúsnæði |
| Myndir | Hans-Olav Andersen |