512 4200 info@tst.is

Ingólfstorg

Hönnun og skipulag almenningsrýma og frumhönnun hótels.

Tillagan fólst í því að styrkja umgjörð og draga fram sérstöðu Austurvallar, Víkurgarðs og Ingólfstorgs og tryggja öruggt og gott flæði um stræti og sund.

Lagt er til að við Ingólfstorg rísi bókmenntahús, sem hefur að markmiði að efla áhuga á bókmenntum og stuðla að lestri. Bókabúð og kaffihús eru á götuhæð, aðstaða fyrir umræður og miðlun á efri hæðum ásamt vinnuaðstöðu og smáíbúðum fyrir rithöfunda og fræðimenn. Stærri viðburðir bókmenntahússins færu fram í samkomusalnum sem kenndur er við NASA. Salurinn hefur fjölbreytt notagildi og nýtist í tengslum við hótel og starfsemi bókmenntahúss.

Núverandi hönnun og útfærsla Ingólfstorgsins skapar umgjörð um ríkt mannlíf og myndar nauðsynlegt svigrúm fyrir dýnamíska og fjölbreytta starfsemi borgarinnar. Lagt er til að varðveita torgið og styrkja umgjörð þess.

Hótel- og veitingarekstur ásamt skrifstofu- og íbúðarhúsnæði á efri hæðum er áberandi á svæðinu. Ferðaþjónusta er mikilvæg atvinnugrein en framtíð hennar verður að byggja á menningu samfélagsins og fjölbreyttu mannlífi. Verslunarrekstur á skipulagssvæðinu er þar mikilvægt innlegg sem og aðsetur menningarstofnunar, þar sem samræðugrundvöllur milli heimamanna og gesta myndast.

Eitt af markmiðum samkeppninnar er að fá fram góða lausn að hóteli. Lagt er til að hótelinu verði komið fyrir í Landssímahúsinu. Byggingunni er umbreytt og hún stækkuð þannig að koma megi fyrir um 130 herbergja, fjögurra stjörnu hóteli, með veitingastöðum og verslunum á jarðhæð og baðaðstöðu á þakhæð. Viðbygging að Austurvelli og Kirkjustræti stuðlar að skýrri afmörkun Austurvallar til vesturs og myndun göturýmis í Kirkjustræti. Aðalinngangur hótelsins snýr að Víkurgarði, sem gefur hótelinu aðlaðandi og rólega umgjörð.Víkurgarður býr yfir möguleikum að þróast sem skjólsæll, sólríkur skrúðgarður. Skapandi hugsun við rekstur jarðhæðar umhverfis torgið gæti virkjað þá möguleika sem garðurinn býður uppá.

Ár 2012
Staður Reykjavík
Verkkaupi Reykjavíkurborg
Verkform Samkeppni
Myndvinnsla Magnús Andersen